Resumen del episodio
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við sjáum hvernig gyðingar ásaka Pál fyrir að brjóta lögmál þeirra en landstjórinn Gallíon neitar að taka málið og stöðvar réttarhöldin. Söfnuðurinn í Korintu er ungur og óþroskaður. Páll gagnrýnir sundrungu þeirra og sjálfshyggju, sem gerir það að verkum að þau skilja ekki dýpri hluti fagnaðarerindisins. Þættinum lýkur með för fjórmenninga til Efesus og lokum annarrar trúboðsferðar Páls.

Episodios
Dagur 71 - Sjálfshyggjan þvælist fyrir
EscuchadoVelkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við sjáum hvernig gyðingar ásaka Pál fyrir að brjóta lögmál þeirra en landstjórinn Gallíon neitar að taka málið og stöðvar réttarhöldin. Söfnuðurinn í Korintu er ungur og óþroskaður. Páll gagnrýnir sundrungu þeirra og sjálfshyggju, sem gerir það að verkum að þau skilja ekki dýpri hluti fagnaðarerindisins. Þættinum lýkur með för fjórmenninga til Efesus og lokum annarrar trúboðsferðar Páls.
Dagur 70 - Af hverju lét ekki blessað fólkið segjast?
EscuchadoVelkomin í Biblían á mannamáli: við ræðum Síðara Þessaloníkubréf Páls, skrifað um árið 51 e.Kr., og skoðum helstu efnisþætti bréfsins. Kaflarnir fjalla um misskilning varðandi endurkomu Jesú Krists; ofsóknir og hópa sem villa fyrir söfnuðinum; auk gagnrýni á þá sem vilja ekki vinna. Páll hvetur til þrautseigju og ábyrgðar í söfnuðinum. Hvernig í ósköpunum stóðts fólkið allar þessar þrengingar?
Dagur 69 - Páll safnar hári
EscuchadoÍ þessum þætti förum við í gegnum atburði Postulasögunnar kafla 18 og fylgjum Páli í þjónustu hans í Korintu: prédikanir, mótstaða og kraftaverk, ásamt því hvernig kirkjan vex í kærleika og samfélagi við son Guðs. Við skoðum einnig þemu eins og persónulegt samband við Guð, ákvörðun Páls um nasíreaheit, og misskilning um endurkomu Drottins, sem leiðir til bréfsins sem við lesum næst. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
Dagur 68 - Óravíddir lífsins
EscuchadoÞessi þáttur ræðir hvernig Páll bregst við ofsóknum og hvetur söfnuðinn til kærleika og trausts. Hann fjallar einnig um hina kristnu von, um upprisu hinna sofnuðu og gönguna á vegi Jesú Krists. Við erum lifandi sem börn ljóss og kærleika. Hlaðvarpið tengir Ritninguna við nútímann; fjallar örstutt um nær-dauða reynslu; daglegt líf trúarinnar og boðar kraft kærleika og ljóss til að yfirstíga ótta og dauða.
Dagur 67 - Lifandi Orð sem ber ávöxt
EscuchadoVelkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir 2.kafla Fyrra Þessaloníkubréfs: bakgrunn Páls, ofsóknir sem hann mætti og hvers vegna eining og fjölskylduhugsun í kirkjunni skiptir svo miklu máli. Rætt er um boðskap Páls — að hann predikaði ekki til að þóknast mönnum heldur Guði — og hvernig hið lifandi orð Guðs (sjá Jóhannes 15) vinnur í hjörtum fólks; hvernig Guð sniðlar til, svo við berum meiri ávöxt kærleikans. Þátturinn tekur aðeins á fölskum kenningum og andstöðu, og endar með gleði Páls yfir vexti og kærleika í Þessaloníku: kjarninn er að elska Drottin og náungann.